Febrúarmálsverður Friðarhúss

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudaginn 24. febrúar nk. Matseldinn verður í höndum Daníels Hauks Arnarssonar og Snærósar Sindradóttur. Þau bjóða upp á: * Fiskisúpu * Grænmetissúpu * Brauð Tónlistarmennirnir Gímaldin og Skúli mennski taka lagið að borðhaldi loknu. Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 1.500. Allir velkomni.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Kjúklingaforingi í Friðarhúsi

Heimildarmyndin Íslenska sveitin eftir Kristinn Hrafnsson og Friðrik Guðmundsson vakti mikla athygli fyrir fáeinum misserum. Hún dró upp ógleymanlega mynd af hinu svokallaða friðargæsluliði Íslendinga á flugvellium í Kabúl, sem margir töldu bera skýr merki þess að vera hersveit. Erlenda útgáfa myndarinnar, The Chicken Commander, var enn beittari og áhrifameiri. Myndin hefur öðru hvoru verið [...]

Read full story Comments are closed

Friðargöngur á Þorláksmessu

Þrjár friðargöngur verða á Þorláksmessu. Í Reykjavík, á Ísafirði og á Akureyri. Tvær þær fyrstnefndu hefjast klukkan 18, en Norðlendingar bíða til kl. 20. Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi frá klukkan 17.45 og lagt af stað klukkan 18. Í lok göngu verður fundur á Lækjartorgi þar sem Magnús Þorkelsson, aðstoðarskólastjóri í Flensborgarskóla, flytur ávarp en fundarstjóri [...]

Read full story Comments are closed

Fullveldisfögnuður SHA

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, ath. breyttan tíma.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Fréttir frá landsfundi SHA

Landsfundur SHA var haldinn í Friðarhúsi 25.-26. nóvember. Ný miðnefnd var kjörin á fundinum. Hana skipa: Auður Lilja Erlingsdóttir, Bergljót Njóla Jakobsdóttir, Elías Jón Guðjónsson, Harpa Stefánsdóttir, Hildur Lilliendahl, Sigurður Flosason, Stefán Pálsson (formaður), Þorvaldur Þorvaldsson og Þórir Hrafn Gunnarsson. Varamenn: Jóhann Páll Jóhannsson, Kolbeinn Hólmar Stefánsson, Snæbjörn Guðmundsson. Þrjár ályktanir voru samþykktar á fundinum: 1. Ályktun um herskipakomur Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fagnar þeirri stefnubreytingu sem orðið hefur hjá [...]

Read full story Comments are closed

Rauður vettvangur í Friðarhúsi

Friðarhús er í útláni þetta kvöld.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Fullveldisfögnuður SHA

Fullveldisfögnuður SHA – fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, fös. 2. desember Glæsilegt jólahlaðborð í Friðarhúsi. Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér um matseldina. Matseðill: Heimalöguð sænsk jólaskinka með kartöflusalati, gulrótarappelsínusalati og sinnepssósu Heimagerð lifrakæfa (borin fram heit) og heimabakað rúgbrauð Reykt nautatunga með piparrótarrjóma Karrýsíld Tómatsalsasíld Hnetusteik í boði f. grænmetisætur Kaffi og smákökur Verð kr. 2.000. Borðhald hefst kl. [...]

Read full story Comments are closed

Landsfundur SHA 2011

Landsfundur SHA 2011 verður haldinn 25.-26. nóvember í Friðarhúsi Dagskrá: Föstudagur 25. nóv. 20:00 – SHA og samskiptavefirnir: Hvernig geta róttæk samtök nýtt sér möguleika internetsins? Spjallfundur með sérfræðingum. Laugardagur 26. nóv. 11:00 – Almenn aðalfundarstörf (Einfaldur hádegisverður í matarhléi) 14:00 – Málþing um Nató. Þingkonurnar Birgitta Jónsdóttir úr hreyfingunni og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir úr VG [...]

Read full story Comments are closed

Endurbætur á vefsíðu

Endurbætur standa yfir á vefnum. Á næstu dögum mun síðan taka breytingum og meira efni verða aðgengilegt.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Félagsfundur MFÍK, mánudagskvöld

Opinn félagsfundur MFÍK verður mánudaginn 14. nóvember kl. 19 í Friðarhúsi. Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í Velferðarráðuneytinu, fjallar um ákvörðun um móttöku flóttafólks. Léttur kvöldverður seldur á kr. 1.000 í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30. Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed